Öruggur sigur Keflvíkinga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2007 21:14 Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir í leik með Keflavík fyrr á tímabilinu. Víkurfréttir/Jón Björn
Keflavík og Haukar áttust við í toppslag Iceland Express-deildar kvenna í kvöld. Keflavík rétti úr kútnum eftir tapið fyrir Grindavík í síðustu umferð. Keflavík var allan tímann með forystuna í leiknum og var sigurinn öruggur. Haukar náðu að minnka muninn í eitt stig í upphafi annars leikhluta, 25-24, en staðan í hálfleik var 54-38 fyrir Keflavík. Haukar minnkuðu muninn í tólf stig og var staðan þegar síðasti leikhlutinn hófst 73-61. Keflvíkingar voru í miklu stuði í leiknum og skoruðu alls fjórtán þriggja stiga körfur í leiknum. TaKesha Watson var stigahæst með 21 stig og hún gaf ellefu stoðsendingar þar að auki. Margrét Kara Sturludóttir skoraði 20 stig fyrir Keflavík og tók þar að auki níu fráköst og hún gaf sjö stoðsendingar. Rannveig Randversdóttir var með nítján stig. Hjá Haukum var Kiera Hardy stigahæst með 27 stig, Kristrún Sigurjónsdóttir var með fimmtán og Telma Björk Fjalarsdóttir þrettán auk þess sem hún tók þrettán fráköst. Keflavík tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í síðustu umferð er það tapaði fyrir Grindavík í framlengdum leik. Kelflavík er á toppi deildarinnar með átján stig eftir tíu leiki. KR og Haukar koma næst með sextán stig. KR hefur leikið tíu leiki en Haukar ellefu. Einn annar leikur fór fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Hamar vann Fjölni í Grafarvogi, 75-51. Hamar er því með fjögur stig en Valur og Fjölnir eru með tvö.
Dominos-deild karla Mest lesið Aftur tapar Liverpool Fótbolti „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Fékk óvart rautt spjald Enski boltinn Snoop Dogg aftur á leiðinni á Ólympíuleika Sport Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Körfubolti Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana Körfubolti KR vann nýliðaslaginn Körfubolti Tottenham bjargaði stigi í Noregi Fótbolti Fleiri fréttir Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana KR vann nýliðaslaginn Meistararnir byrja á góðum sigri Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 64-81 | Reynslan skilaði gestunum sigri „Væri eiginlega kjánalegt að segjast ekki ætla að gera betur“ Ragnar frá Þorlákshöfn í Grindavík „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Al Horford til Golden State Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 83-86 | Njarðvík meistari meistaranna eftir kaflaskiptan leik Tindastóli og Njarðvík spáð toppnum í vetur Svona var kynningarfundurinn fyrir Bónus-deildirnar í vetur Yfirlýsing KKÍ: Hvorki vilja né geta tjáð sig um mál Davíðs Helenu nóg boðið: „Ætlum við í alvöru að leyfa þessu að gerast?“ Formaður dómaranefndar KKÍ tjáir sig ekki Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit Sjá meira