Erlent

Leit hert að Madeleine í Marokkó

Óli Tynes skrifar
Madeleine McCann er nú fjögurra ára gömul.
Madeleine McCann er nú fjögurra ára gömul.
Leitin að Madeleine McCann hefur verið hert í Marokkó eftir margar tilkynningar um að hún hafi sést þar.

Um jólin voru sett upp 11 þúsund plaköt með mynd af henni víðsvegar um landið. Textinn á plakötunum er bæði á frönsku og arabisku. Í honum er fólk beðið að tilkynna til lögreglunnar ef það telur sig hafa séð hana.

Það voru samtökin "Helping to find Madeleine," sem borguðu fyrir plakötin. Þau voru send læknum, apótekum, kirkjum, veitingahúsum og öðrum samkomuhúsum á landsbyggðinni.

Marokkó var nefnt fljótlega eftir að telpan hvarf og einkalögreglumenn sem foreldrar hennar réðu í sína þjónustu hafa einbeitt er að leit þar í landi undanfarnar vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×