Erlent

Vona að jólaveinninn komi með Madeleine

Systkini Maddie McCann vona að jólaveinninn komi með hana heim fyrir jólin.
Systkini Maddie McCann vona að jólaveinninn komi með hana heim fyrir jólin.
Foreldrar hinnar fjögurra ára gömlu Maddie McCann, sem hvarf sporlaust í Portúgal í maí, hafa upplýst um jólaóskir yngri systkina hennar. Þau óska þess að jólaveinninn komi með systur þeirra fyrir jólin.

"Kemur jólaveinninn með Maddie?" Þessi saklausa spurning systkina Maddie Mcann framkallaði tár á hvörmum foreldranna Gerry og Kate sem sögðu við enska blaðið News of the World að þau höfðu fengið sting í hjartað.

Hjónin sjá nú fram á jóla í skugga hvarfs Maddie og ætla fagna hátíðinni á látlausan hátt. "Við munum halda upp á jólin í Bretlandi. Okkur langar ekki mikið til að fagna en við viljum að jólin séu eins venjuleg og hægt er fyrir tvíburana [systkini Maddie] Sean og Amelie. Þau eru nú þegar búin að skreyta jólatréð með ömmu sinni," segja hjónin.

"Þótt þau séu aðeins þriggja ára þá virðast þau skilja að þau fái gjafir frá jólasveininum. Þau hafa einnig spurt hvort jólaveinninn komi með Maddie heim. Heimkoma hennar yrði auðvitað langbesta jólagjöfin sem hægt væri að hugsa sér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×