Sigurður: Liðsheildin hefur verið frábær Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. nóvember 2007 14:53 Sigmundur Herbertsson, besti dómarinn, Sigurður Ingimundarson og Bobby Walker. Mynd/E. Stefán
Sigurður Ingimundarson var í dag útnefndur besti þjálfari Iceland Express deildar karla fyrir fyrstu átta umferðirnar. Undir hans stjórn hefur Keflavík unnið allar átta viðureignir sínar til þessa í deildinni. Tveir leikmenn Keflavíkur, Bobby Walker og Jón Nordal Hafsteinsson, voru valdir í úrvalslið umferðanna auk þess sem Walker var valinn besti leikmaðurinn. „Þessir strákar hafa verið að spila mjög vel eins og allir aðrir í liðinu. Það er það skemmtilega við gengi liðsins hvað liðsheildin hefur verið sterk. Það er enginn að reyna að skara fram úr. Bæði Jón og Bobby gera marga litla hluti mjög vel en það er fyrst og fremst liðsheildin hjá Keflavík sem hefur skilað þessum árangri." Oft hefur verið rætt um heppni og óheppni þegar kemur að því að velja bandarískan leikmann en Sigurður blæs á slíkar umræður. „Þetta eru bara leikmenn sem eru partur af liðinu. Bobby hefur fallið vel inn í liðið, spilar til að vinna leikina en ekki endilega til að vera besti maður vallarins. Hann er nú að spila í fyrsta sinn sem atvinnumaður og hann hefur lagt gríðarlega mikið á sig. Hann ætlar sér mjög langt og ég efa ekki að honum takist það." Hann varar þó við of mikilli bjartsýni enda er mikið eftir af tímabilinu. „Við erum mjög afslappaðir og tökum einn leik fyrir einu. En það er alveg ljóst að við ætlum að gera meira en bara berjast um titlana."
Dominos-deild karla Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Yfirlýsing UEFA: Óskiljanleg ákvörðun sem grefur undan trúverðugleika HM Fótbolti Merino hryggði Ronaldo í hinsta dansinum Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Sepp Blatter: „Rauðum spjöldum er ekki snúið við með pólitískum símtölum“ Fótbolti Leikmenn Mexíkó þurftu að skila lúxusúrunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira