Erlent

Orð Kate þungamiðja rannsóknarinnar

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Kate og Gerry McCann á leið til lögmanna sinna í London í síðustu viku.
Kate og Gerry McCann á leið til lögmanna sinna í London í síðustu viku. MYND/AFP
Breska blaðið Daily Mail greinir í dag frá fyrstu viðbrögðum Kate McCann eftir að Madeleine hvarf. Fyrsta vitnið af viðbrögðunum hefur nú komið fram í fjölmiðlum. Charlotte Pennington barnfóstra, segir að Kate hafi öskrað: „Þeir hafa tekið hana, þeir hafa tekið hana."

Þessi orð hennar hafa orðið að þungamiðju rannsóknar portúgölsku lögreglunnar á hvarfi Madeleine. Hún spyr af hverju Kate hafi strax ályktað að dóttur hennar hafi verið rænt.

McCann hjónin hafa brugðist við með því að halda því staðfastlega fram að Kate hafi öskrað: „Madeline er farin."

Charlotte var með þeim fyrstu inn í íbúð fjölskyldunnar eftir hvarf dótturinnar. Hún segist hafa heyrt Kate nota báðar útgáfur, en ítrekar að hún viti ekki hvað Kate hafi sagt fyrst eftir að hvarfið uppgötvaðist.

Barnfóstran er 20 ára gömul og gætti barna fyrir Mark Warner sumarleyfisíbúðirnar í Praia da Luz. Hún heldur því fram að hjónin séu saklaus. Hún lýsir Kate sem niðurbrotinni konu sem hefði skolfið og verið ófær um að hreyfa sig í kjölfar hvarfsins.

Pennington er mikilvægt vitni fyrir portúgölsku lögregluna. Hún var yfirheyrð í fjóra og hálfan klukkutíma vegna málsins. Hún segir einnig að Robert Murat sem var fyrstur til að fá réttarstöðu grunaðs, hafi verið á svæðinu eftir hvarf Madeline litlu, en Því hefur hann staðfastelga neitað. Hún segir hann hafa staðið og fylgst með, það sé alveg öruggt að hann hafi verið á svæðinu.

Fjölmiðlar í Portúgal þrýsta nú á lögregluyfirvöld að finna lík stúlkunnar strax, því annars eigi þau ekki möguleika á að ákæra foreldra Madeleine.

Síðustu daga hefur töluvert verið fjallað um tvö mismunandi tilfelli þar sem fólk taldi sig hafa séð Madeleine í Marrakech í Morocco 9. maí síðastliðinn. Fyrri tilkynningin barst frá norskri konu sem sagðist hafa séð Maddie á bensínstöð. Seinni tilkynningin kom frá breskum ferðamanni sem hafði samband við lögreglu eftir heimkomu frá Marocco. Hann greindi frá því að hafa séð stúlkuna á svipuðum tíma og svipuðum stað og norska konan.

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×