Erlent

Foreldrar Madeleine ráða einkaspæjara

MYND/AFP
Foreldrar stúlkunnar Madeleine McCann hafa ráðið til sín einkaspæjara til að rannsaka hvarf hennar. Hefur einkaspæjurunum meðal annars verið gert að taka saman allar ábendingar í málinu frá þeim fjölmörgum vitnum sem segjast hafa séð stúlkuna.

Einkum verður rannsókninni beint að tveimur ábendingum sem bárust lögreglunni snemma í maímánuði um að stúlkan hafi sést í Marakkó í Norður-Afríku.

Ekkert hefur spurst til Madeleine síðan hún hvarf af hótelherbergi hjónanna í Portúgal í síðastliðnum maímánuði. Foreldrar stúlkunnar liggja undir grun í málinu en hingað til hefur þó enginn verið kærður vegna hvarfsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×