Formenn leggja fram sáttafrumvarp 8. mars 2007 18:24
Formenn stjórnarflokkanna munu leggja fram þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni, sem tryggja á að allar náttúruauðlindir Íslands skuli vera þjóðareign. Þar með er lokið einu mesta átakamáli stjórnarflokkanna á yfirstandandi kjörtímabili. Óhætt er að segja að opinberlega er töluvert síðan önnur eins kreppa hefur ríkt í stjórnarsamstarfinu og undanfarna viku um auðlindamálið og stjórnarskrána. Eftir að formenn stjórnarflokkanna funduðu í gærkvöldi, tók við kvöldfundur þingflokks Framsóknarmanna sem stóð til að verða eitt í nótt. Að loknum þeim fundi taldi formaður Framsóknarflokksins að samkomulag gæti tekist í dag. Þingflokkur Sjálfstæðismanna kom svo saman til óformlegs fundar klukkan þrjú, þar sem forsætisráðherra kynnti flokksmönnum sínum samkomulag sitt við formann Framsóknarflokksins. Niðurstaðan var að þeir tveir leggja fram í eigin nafni þingmannafrumvarp um breytingu á stjórnarskránni en ákvæðið hljómar þannig. Náttúruauðlindir Íslands skulu vera þjóðareign, þó þannig að gætt sé réttinda einstaklinga og lögaðila skv. 72. gr. Ber að nýta þær til hagsbóta þjóðinni, eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Ekki skal þetta vera því til fyrirstöðu að einkaaðilum séu veittar heimildir til afnota eða hagnýtingar á þessum auðlindum skv. lögum. "Og þetta ber vitni um þann vana í þessu stjórnarsamstarfi að vandamálin eru greind, þau eru tekin sem viðfangsefni, viðfangsefninu er breytt í úrlausn og úrlausnin verður framfarir og umbætur fyrir alla þjóðina," sagði Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins á sameiginlegum blaðamannafundi formanna og varaformanna stjórnarflokkanna á Alþingi í dag. Það kom mörgum á óvart hvað Framsóknaflokkurinn rak þetta mál stíft, en formaður Sjálfstæðisflokksins vildi þó ekki meina að Framsóknarmenn hefðu stillt Sjálfstæðismönnum upp við vegg í þessu máli. "Nei, það er nú ekki hægt að segja það. En hins vegar hafði ég ekki gert mér grein fyrir því að þetta væri þeim jafn mikið alvörumál og kom á daginn. En þegar það varð ljóst fórum við náttúrlega í það að finna lausnina," sagði Geir H Haarde forsætisráðherra. Formenn stjórnarflokkaanna kannast ekki við að samið hafi verið um afgreiðslu annarra mála milli flokkanna í þessu samhengi. Afgreiðsla annarra mála milli stjórnarflokkanna voru ekki rædd í þessu samhengi að sögn formannanna. Framsóknarflokkurinn hafi ekki þurft að gefa eftir í öðrum málum til að fá þessa niðurstöðu fram. Formenn stjórnarflokkanna segja að ef breytingin nái fram að ganga hafi það ekki mikil áhrif til að byrja með, t.a.m. á stöðu sjávarútvegsins, enda ráð fyrir því gert að einkaaðilar geti nýtt auðlindir landsins þótt slíkt leyfi kunni að vera afturkræft. Þetta breyti heldur engu um virkjanamöguleika. "Það er ástæða til að vekja athygli á því að þrátt fyrir skilgreininguna á þjóðareign, þá eru öll eignaréttindi, bein og óbein, sem heyra undir 72. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir að eignarétturinn sé friðhelgur, þau eignaréttindi eru sérstaklega varin með þessu ákvæði hér," sagði Geir H Haarde forsætisráðherra.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Fleiri fréttir Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Sjá meira