Lífið

Dóttir Bacharahcs svipti sig lífi

Burt Bacharach.
Burt Bacharach.

Dóttir tónlistarmannsins Burts Bacharach og leikkonunnar Angie Dickinson, svipti sig lífi í síðustu viku. Nikki Bacharach var fjörutíu ára gömul.

Hún þjáðist af Asbergers sjúkdómi sem er skyld einhverfu. Nikki, sem fæddist árið 1966 las jarðfræði við háskóla í Kaliforníu, en gat aldrei starfað á því sviði.

Í tilkynningu frá fjölskyldunni, um lát hennar, sagði: "Hún elskaði kettlinga og jarðskjálfta, hrynjandi íshellur, loftsteinadrífur, vísindi, bláan himin og sólarlag, og Tahiti."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.