Markahæstur í mótlæti 1. febrúar 2007 13:53 Snorri Steinn Guðjónsson AP
Snorri Steinn Guðjónsson er sá leikmaður íslenska handboltalandsliðsins sem hefur skorað flest mörk þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í leikjum sínum á HM í handbolta. Óskar Ófeigur Jónsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur tekið saman skemmtilegan tölfræðipakka um framlag Snorra á HM til þessa. Snorri Steinn hefur margoft sýnt það að hann er sá leikmaður liðsins sem er tilbúin í að taka mikla ábyrgð innan íslenska landsliðsins og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann alltaf verið tilbúinn að taka af skarið þegar á reynir. Þetta sannaðist enn einu sinni í leiknum gegn Dönum í átta liða úrslitunum þegar hann kom íslenska liðinu nánast upp á sitt einsdæmi inn í leikinn aftur. Snorri Steinn kórónaði framgöngu sína með því að tryggja íslenska liðinu framlengingu með marki úr vítakasti nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Snorri Steinn hefur skorað 24 af 45 mörkum sínum þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í leikjum sínum á HM í handbolta eða sex mörkum fleira en Guðjón Valur Sigurðsson sem kemur honum næstur í markaskorun við slíkar aðstæður. Snorri Steinn hefur skorað 10 af þessum 24 mörkum sínum af vítalínunni en hann hefur nýtt 91% af vítum sínum þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í sínum leikjum. Átta af átján mörkum Guðjóns Vals hafa komið úr fyrstu bylgju í hraðaupphlaupi en næstur Snorra Stein í mörkum úr uppsettum sóknum er Ólafur Stefánsson. Snorri Steinn hefur skorað 21 mark úr uppsettum sóknum og fimm til viðbótar úr annarri bylgju hraðaupphlaups. Ólafur Stefánsson hefur skorað 16 mörk úr uppsettum sóknum og eitt til viðbótar úr annarri bylgju hraðaupphlaups. Þegar tekin inn í dæmið mörk þegar íslenska landsliðið er undir en enn inn í leiknum eykst forusta Snorra Steins enn. Skilgreiningin á að vera inn í leiknum er að það sé fjögurra marka munur eða minni á liðunum. Snorri Steinn hefur skorað 22 af þessum 24 mörkum við þær kringumstæður sem er 8 mörkum meira en næsti maður sem er landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson en Ólafur hefur skorað 14 mörk þegar Ísland er undir en enn inn í leiknum. Ólafur Stefánsson er hinsvegar sá leikmaður liðsins sem hefur búið til flest mörk þegar landsliðið hefur verið undir á HM í handbolta. Ólafur hefur komið að 47 mörkum við þær kringumstæður eða 11 fleiri en Snorri Steinn. Hér munar mestu um stoðsendingar Ólafs en hann hefur átt 25 stoðsendingar þegar íslenska landsliðið hefur verið undir í sinum leikjum í Þýskalandi. Þeir Ólafur og Snorri Steinn eru mennirnir sem aðrir leikmenn treysta á þegar íslenska landsliðið glímir við mótlæti og þarf nauðsynlega á markvissum sóknum á að halda. Ólafur er núverandi fyrirliði liðsins en með framgöngu sinni hefur Snorri Steinn enn og aftur sýnt að hann er leiðtogi liðsins og afar líklegur til að taka fyrir fyrirliðabandinu í framtíðinni. ooj@frettabladid.isMörk Snorra Steins þegar Ísland er undir: Kringumstæður 5 mörkum undir 2 mörk 4 mörkum undir 4 3 mörkum undir 3 2 mörkum undir 7 1 marki undir 8Skipting marka: Vítaköst 10 Gegnumbrot 6 (4 í seinni bylgju) Langskot 4 (1) Lína 4Flest mörk þegar Ísland er undir: Snorri Steinn Guðjónsson 24 Guðjón Valur Sigurðsson 18 Ólafur Stefánsson 17 Alexander Petersson 16 Logi Geirsson 14 Markús Máni Michaelsson 10 Róbert Gunnarsson 9 Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 Arnór Atlason 1 Sigfús Sigurðsson 1 Vignir Svavarsson 1 Flest sköpuðu mörk þegar Ísland er undir: Ólafur Stefánsson 47 17 mörk+25 stoðsendingar+5 fiskuð víti Snorri Steinn Guðjónsson 36 24 mörk+9 stoðsendingar+3 fiskuð víti Logi Geirsson 22 14 mörk+8 stoðsendingar Alexander Petersson 21 16 mörk+5 stoðsendingar Guðjón Valur Sigurðsson 20 18 mörk+2 stoðsendingar Róbert Gunnarsson 13 9 mörk+1 stoðsendingr+3 fiskuð víti
Mest lesið Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Körfubolti Standa með Eygló í martröðinni Sport Týndur í fjórtán daga Fótbolti Barnabarn Idi Amin dæmt úr leik fyrir að skalla andstæðing Sport Howe hættur hjá Newcastle Enski boltinn Fljótasti hvíti maður sögunnar Sport Enska deildin mótmælir ákvörðunum Infantino Fótbolti Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Tvítugur strákur fær næstum því tólf milljarða króna samning Sport Ancelotti segir landsliðsferli Neymar lokið Fótbolti Fleiri fréttir Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Sjá meira