Innlent

Híbýli rónanna verða rifin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mummi í Götusmiðjunni saknar Gunnarsholts.
Mummi í Götusmiðjunni saknar Gunnarsholts.

„Ég mun sakna húsanna. Þetta er að mörgu leyti mjög sérstakt hverfi þarna þar sem nokkrir af frægustu rónum landsins bjuggu," segir Guðmundur Týr Þórarinsson í Götusmiðjunni.

Til stendur að rífa húsin í Gunnarsholti þar sem áður var meðferðarheimili fyrir unglinga í fíkniefnavanda. Ríkið á húsin og hafði Landspítalinn þau til afnota frá því um miðjan sjötta áratug síðustu aldar og rak heimili fyrir áfengissjúklinga allt til ársins 2002. Eftir það tók starfsemi Götusmiðjunnar við. Nú heyra húsin og landsvæðið hins vegar undir Landgræðslu ríkisins. Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að Landgræðslan fái 10 milljónir króna til viðhalds á þremur íbúðarhúsum sem þarna stóðu og til að rífa aðalhúsið, þar sem skjólstæðingar höfðu aðstöðu.

„Það er merkileg saga í kringum aðalhúsið. Það er svolítið byggt eins og gömlu geðspítalarnir," bætir Guðmundur við. „Mér finnst alveg synd og skömm að horfa á ríkiseignir grotna þarna ofan í jörðina. Það hefði alveg mátt nýta þessi hús betur. Við hefðum vel getað verið þarna lengur ef húsunum hefði verið haldið við," segir hann.

Guðmundur segist þó ánægður með ný híbýli Götusmiðjunnar í Brúarholti í Grímsnesi. „Það fer vel um okkur og ég er hreykinn að segja frá því að ríkið hefur viðhaldið þessum húsum vel," segir Guðmundur að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×