Sex Pistols koma saman á ný 18. september 2007 09:36 Hlómsveitin árið 1976. MYND/Getty
Breska pönkhljómsveitin Sex Pistols mun koma saman á ný til að fagna því að 30 ár eru liðin frá því að plata þeirra Never Mind the Bollocks kom út. Eftirlifandi meðlimir hljómsveitarinnar, þeir John Lydon, Steve Jones, Paul Cook og Glen Matlock munu koma fram á Brixton Academy í London þann áttunda nóvember næstkomandi. Hljómsveitin hætti árið 1978 en kom aftur saman árið 1996 og fór í heimsreisu. Hún kom síðast saman árið 2003. Never Mind the Bollocks, sem meðal annars hefur að geyma lögin God Save the Queen og Anarchy in the UK, olli miklu fjaðrafoki þegar hún kom út árið 1977. Í dag er platan þó ein virtasta innan pönksins og er talin hafa haft mikil áhrif á rokksöguna. Í tengslum við tónleikana verða lögin God Save the Queen, Anarchy in the UK, Pretty Vacant og Holidays In The Sun gefin út á smáskífu. Tímaritið NME hefur auk þess komið af stað herferð sem miðar að því að koma God Save the Queen á topp breska vinsældarlistans. Lagið var upphaflega bannað af breska ríkisútvarpinu en endaði engu að síður í öðru sæti vinsældarlistans á sínum tíma. Sumir héldu því fram að lagið hafi lent í fyrsta sæti en að tölum hafi verið hagrætt.
Mest lesið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Hvað veistu um… London? Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Sjá meira