Færist í vöxt að fólk borði úti á aðfangadag 23. desember 2007 19:45
Það færist sífellt í vöxt að Íslendingar borði jólasteikina á veitingastað í stað þess að borða hana heima. Nokkrir veitingastaðir í höfuðborginni verða opnir á morgun. Jólin eru fyrir marga tími fastra venja og siða þar sem litlu er breytt frá ári til árs. Þó eru sumir sem kjósa að brydda upp á einhverju nýju og þannig hefur það færst í vöxt á undanförnum árum að Íslendingar kjósi að eyða jólunum á sólarströnd erlendis. Þá hefur það einnig færst í vöxt að Íslendingar fari út að borða á aðfangadag strax eftir messu. Gígja Magnúsdóttir, vaktstjóri á veitingastaðnum Vox, segir um 100 manns með bókað borð á morgun. Þar á meðal stór hópur Íslendinga. Gígja segir oftar en ekki um eldra fólk að ræða með uppkomin börn sem vilji breyta til á jólunum. Almennt skemmtanahald er þó bannað yfir helstu hátíðisdagana eða frá klukkan 18 á aðfangadag til klukkan sex að morgni annars í jólum. Matvöruverslanir loka almennt upp úr hádegi á morgun en svokallaðar klukkubúðir verða þó opnar til klukkan fjögur. Verslanir verða svo lokaðar á jóladag. Apótek verða víða opin til klukkan fjögur á morgun og á einstökum stöðum til klukkan sex en síðan lokað til jóladags. Þá verða síðustu strætisvagnaferðirnar á höfuðborgarsvæðinu farnar upp úr klukkan tvö á morgun en ferðir hefjast að nýju samkvæmt áætlun annan í jólum.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira