Hátt í tvö þúsund manns á Bíldudals grænum 1. júlí 2007 19:32
Aldrei fyrr hafa jafn margir verið samankomnir á Bíldudal eins og nú um helgina en hátt í tvö þúsund manns sóttu hátíðina Bíldudals grænar í steikjandi sól og blíðu.Menn sögðu að stemmningin hefði verið alveg meiriháttar, sól og um og yfir tuttugu stiga hiti alla þrjá dagana sem hátíðin stóð og að hún hefði heppnast í alla staði afskaplega vel. Helgi Hjálmtýsson, verkefnisstóri Bíldudals grænna, áætlar að milli 1500 og 2000 manns hafi sótt hátíðina og er mönnum til efs að svo mikill mannfjöldi hafi áður verið samtímis á Bíldudal. Sérstakt leyfi fékkst til að veiða rækju úr Arnarfirði og síðan bauðst fólki að pilla hana sjálft á bryggjunni og taka með sér heim. Þarna var líka haldið meistaramót í kalkþörungakappakstri og kraftakarlar kepptu í Vestfjarðavíkingnum. Bíldudals grænar hefur þá sérstöðu að Arnfirðingar sjá sjálfir um helstu skemmtiatriði enda líta menn á hátíðina sem lið í því að viðhalda menningar-, lista- og sagnahefð sem Arnfirðingar hafi verið þekktir fyrir og skila henni til komandi kynslóða. Þannig var hápunkturinn tónleikar á laugardagskvöldinu þar sem eingöngu léku bíldælskir tónlistamenn. Markmið Bíldudals grænna er að kynna ferðafólki arnfirska menningu; efla tengsl milli Arnfirðinga; og auka tekjur af ferðafólki í byggðarlaginu. Hátíðin er á forræði Arnfirðingafélagsins.
Mest lesið Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent