Þúsund og einn, þúsund og tveir, þúsund og þrír 12. júlí 2007 06:00 Að ná ekki að stöðva bifreið í þéttri umferð og lenda aftan á annarri fyrir framan í röðinni eða á gatnamótum er eitt alvarlegasta meinið í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Allt of margir sem fara af stað út í umferðina að morgni dags sitja uppi með það að kvöldi að hafa lent í aftanákeyrslu. Hafa jafnvel skaðað sjálfa sig og aðra og valdið verulegu eignatjóni. Aftanákeyrslur eru margar, árið 2006 urðu t.d. 3.400 aftanákeyrslur, þar af rúmlega 2.900 á höfuðborgarsvæðinu. Í þessum árekstrum skemmdust rúmlega 7.000 bifreiðar og margir ökumenn og farþegar slösuðust. Samkvæmt útreikningum má gera ráð fyrir því að kostnaður vegna tjóna þar sem ekið er aftan á annað ökutæki í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu hafi numið 2.779 milljónum árið 2006. Meðaltjónakostnaður í hverju tjóni er u.þ.b. 770.000 krónur. Mörg tjón eru minniháttar en þegar harðar aftanákeyrslur verða fylgja þeim alvarleg líkamstjón. Flest verða þessi tjón vegna þess að ökumenn gæta þess ekki að hafa nægjanlegt bil í næsta bíl fyrir framan og jafnframt gæta þeir ekki ávallt að því sem er fram undan og gera sér ekki grein fyrir því að hægt gæti á umferð. Í umferðarlögum eru ákvæði um það að ökumaður eigi að geta stöðvað á þeim hluta vegar sem fram undan er og áður en kemur að hindrun. Í 36. grein umferðarlaganna eru síðan taldar upp helstu aðstæður þar sem ökumenn þurfa að gæta sérstaklega að hraða vegna umferðaröryggis. Fylgi menn ekki þeim reglum sem þar er lýst er mikil hætta á því að þeir nái ekki að stöðva og aki aftan á aðra bifreið sem er skyndilega stöðvuð. Eins og umferðarþunginn er á höfuðborgarsvæðinu verður stöðugt að gera ráð fyrir því að umferðin stöðvist, sérstaklega á stofnbrautum þar sem umferð er mjög mikil og henni stýrt með umferðarljósum. Gott viðmið fyrir ökumenn er að nota „þriggja sekúndna regluna“ til að tryggja hæfilega fjarlægð milli ökutækja. Þessa aðferð lærðum við flest er við tókum ökupróf en í ljósi reynslunnar þá má alveg rifja hana upp: Hún er þannig að þegar ökutæki sem á undan fer er ekið framhjá kennileiti, t.d. ljósastaur, þá telur ökumaðurinn sem á eftir ekur upp að þremur en bætir orðinu „þúsund“ fyrir framan og setur orðið „og“ þar á milli. Hann telur þannig: Þúsund og 1 þúsund og 2, þúsund og 3. Ef ekið er framhjá kennileitinu áður er komið er að því að telja „þúsund og 3“ þá er vegalengdin milli ökutækjanna of lítil og hætta á aftanákeyrslu veruleg. Ef allir færu eftir þessari reglu má reikna með að þjóðfélagið sparaði stórar fjárhæðir í óþarfa tjónum en rétt er að nefna það að kostnaður þjóðfélagsins vegna umferðarslysa er áætlaður á bilinu 22 til 30 milljarðar króna á ári. Kostnaður sem verður til vegna þess að vegfarendur gera mistök í umferðinni. Koma mætti í veg fyrir líkamstjón, óbætanlegar þjáningar og sorg ef allir legðust á eitt við að fara eftir settum reglum og einbeittu sér aðeins að því að aka bifreiðinni í stað þess að vera með hugann annars staðar þegar verið er að aka vélknúnu ökutæki. Höfundur er deildarstjóri bifreiðatjóns hjá Sjóvá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Bumbubað Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífseigla gæskunnar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Börn á krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Sjá meira
Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun