Cleese ódýrari en Orkuveituauglýsingin 3. janúar 2007 09:00 Þorsteinn Guðmundsson lék á móti breska grínistanum í auglýsingu Kaupþings sem vakið hefur mikla athygli
Auglýsing Kaupþings með breska stórleikaranum John Cleese vakti mikla athygli á gamlárskvöld enda frumsýnd á eftirsóttasta tímanum í íslensku sjónvarpi, var síðasta auglýsingin fyrir Áramótaskaup Ríkissjónvarpsins. Eitthvað hafa menn verið að velta því fyrir sér hvað kosti að fá leikara í þessum gæðaflokki til að leika í auglýsingu og skrifar almannatengillinn Ómar R. Valdimarsson á bloggsíðu sinni að hún hafi ekki kostað undir áttatíu milljónum íslenskra króna. „Mikið, mikið minna,“ segir Jón Sæmundsson, framkvæmdarstjóri EnnEmm auglýsingastofunnar, sem á stærsta heiðurinn af auglýsingunni. „Upphæðin er mjög langt frá áttatíu milljónum og þetta er alls ekki dýrasta auglýsingin sem gerð hefur verið á Íslandi,“ útskýrir Jón sem sagðist vita um að minnsta kosti eina dýrari auglýsingu. Hann vildi ekki gefa upp hversu mikið breska stórstjarnan hefði fengið borgað fyrir þessar þrjár leiknu auglýsingar auk blaðaauglýsingar sem birtast á næstu dögum því slíkt væri trúnaðarmál. „Það liggja ekki fyrir endanlegar tölur en þetta voru ágætis dagslaun og Cleese horfði á þann höfðarfjölda sem sæi auglýsinguna,“ segir Jón en ólíkt því sem margir hafa haldið þá eru þessar auglýsingar eingöngu hugsaðar fyrir íslenskan markað. Til gamans má geta að Orkuveituauglýsingin, sem fékk á baukinn í lok Skaupsins, kostaði 15 til 18 milljónir og telst meðal dýrustu auglýsinga sem gerðar hafa verið fyrir íslenskt fyrirtæki.
Mest lesið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda Sjá meira