Ekki ber á geislavirkum leka 9. október 2006 19:20
Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu. Jörð skalf í norð-austurhluta Norður-Kóreu um hálftvöleytið í nótt, þegar kjarnorkusprengjan sprakk neðanjarðar í Kilju í Hamgyong héraði. Jarðskjálftamælar í Japan sýndu skjálfta upp á fjóra komma tvo á Richter og var strax ljóst að hann væri ekki af náttúrulegum orsökum. Norður-kóreska ríkisfréttastofan KCNA birti skömmu síðar opinbera yfirlýsingu þar sem sagði að kjarnorkutilraunin hefði gengið vel. Ekki eru nágrannarnir í suðri sammála því. Mikil mótmæli brutust út í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu þegar fréttir bárust af sprengingunni. Eftir fjögurra ára samningaviðræður var þetta ekki árangurinn sem vonast var eftir. Sprengjan virðist hins vegar ekki hafa verið mjög stór, franskir sérfræðingar hafa áætlað að hún hafi verið um hálft kílótonn. Það jafngildir kraftinum í fimm hundruð tonnum af TNT sprengiefni. Rússar telja hana þó hafa verið mun stærri.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira