Innlent

Heildarlaunakostnaður á vinnustund tvöfaldast á átta árum

MYND/Hari

Heildarlaunakostnaður á vinnustund frá fyrsta ársfjórðungi 1998 til þriðja ársfjórðungs 2006 hefur tvöfaldast hér á landi. Þetta sýnir vísitala launakostnaðar sem starfsverkefni á vegum hagstofu Evrópusambandsins og er nú í fyrsta sinn birt hér á landi. Annar launakostnaður hækkaði meira en heildarlaun og skýrist það af hækkunum tryggingargjalds og lífeyrissjóðsgreiðslna eins og segir í tilkynningu frá Hagstofunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×