Reyndi að ráðast inn í hús forsætisráðherra 2. október 2006 20:40 Girðingin við Downing-stræti 10 sem vopnaður maður klifraði yfir í dag. MYND/AP
Maður vopnaður hnífi reyndi í dag að ráðast inn í aðsetu Tonys Blairs, forsætisráðherra Bretlands, við Downing-stræti 10 í Lundúnum. Maðurinn var handtekinn eftir að hann hafði klifrað yfir girðingu aftan við húsið sem liggur samsíða þeirri hlið byggingarinnar sem snýr að götu sem opin er almenningi. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir vopnaburð og að hafa ráðist að lögreglumanni. Hann heitir Byung Jin Lee og er 32 ára. Hann mun hvergi vera með fasta búsetu. Honum verður gert að mæta fyrir dómara á morgun. Lögregla segir ekkert benda til þess að Lee tengist hryðjuverkasamtökum og því ekki um tilraun til hryðjuverka að ræða. Forsætisráðherra mun ekki hafa verið í beinni hættu en hann var þó í húsinu þegar maðurinn reyndi að ráðast til inngöngu. Hefð er fyrir því að heimili og skrifstofa forsætisráðherra sé í húsinu en Blair og fjölskylda hans hafa búið í Downing-stræti 11. Öryggisgæsla við Downing-stræti 10 verður nú tekin til gagngerrar endurskoðunar. Gæsla þar hefur verið hert til muna síðustu árin. Gatan liggur milli þinghússins og Trafalgar-torgs og hefur verið lokuð ferðamönnum í mörg ár. Ein alvarlegasta árás á húsið var gerð þegar liðsmenn Írska lýðveldishersins, IRA, skutu úr sprengjuvörpu á það í febrúar 1991. John Major, þáverandi forsætisráðherra, sat þá á fundi í Downing-stræti 10 með öllum ráðherrum í ríkisstjórn sinni. Sprengjurnar sprugnu í garði nálægt fundarherberginu. Engan sakaði.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira