Þýðingarmikið skref stigið á Srí Lanka 12. september 2006 19:02
Stjórnvöld á Srí Lanka og uppreisnarmenn Tamíltígra hafa samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Upplýsingafulltrúi vopnaeftirlitsins á Srí Lanka segir þetta þýðingarmikið skref í átt til friðar. Fulltrúi Japana í friðarferlinu staðfesti þetta í dag eftir fund um deiluna sem haldinn var í Brussel í dag. Að fundinum komu fulltrúar Japans, Noregs og Bandaríkjanna auk Evrópusambandsins en þessi þrjú ríki og ESB hafa lagt fé til uppbyggingar á Srí Lanka. Þorfinnur Ómarsson, talsmaður norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka, segir yfirlýsinguna frá í dag þýðingarmikla. Báðir deiluaðilar séu reiðubúnir að koma aftur að samningaborðinu sem hafi ekki gerst síðan í febrúar. Ástandið síðan þá hafi versnað stöðugt og löngu komið í óefni. Nú sé kominn tími til að hætta átökum. Að minnsta kosti 150 manns hafa fallið í átökum stjórnarhersins og Tamíltígra síðustu viku. Tamíltígrarnir drógu sig út úr friðarviðræðunum í apríl á þessu ári og til átaka milli fylkinganna kom í júlí. Nú er boðað að nýju til friðarviðræðna í október. Þorfinnur segir erfitt að segja til um hvort til átaka komi fram að þeim tíma en það gangi varla að berjast þegar stefnt sé að friðarviðræðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira