Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku 11. október 2006 13:15
Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. Nú er það allt að 600 króna gjald ef viðskiptavinir greiða fargöldin með krítarkortum. Viðskiptavinirnir vita ekki af þessu fyrr en eftir á. Norska blaðið Aftenposten segir að slík gjaldtaka sé ýmist ólögleg á Norðurlöndum eða þá að greina þurfi viðskiptavinum skýrt frá henni, fyrirfram. Aftenposten hefur það eftir samkeppnisyfirvöldum í Danmörku að gjaldtakan sé klárlega ólögleg þar í landi þar sem megnið af henni renni beint til flugfélagsins en ekki til krítarkortafyrirtækja fyrir þjónustuna. Þá segja norsk samkeppnisyfirvöld að heildarkostnaður af hverjum flugmiða eigi að liggja fyrir viðskiptavininum hverju sinni með öllum gjöldum inniföldum. En varðandi flugskattinn, sem Sterling hefur innheimt í Svíþjóð, þá ætlaði fyrrverandi ríkisstjórn að leggja hann á í haust en eitt af kosningaloforðum Reinfelts forsætisráðherra fyrir kosningarnar í sumar var einmitt að hætta við þau áform ef hann kæmist til valda og við það stóð hann, nokkuð sem Sterling reiknaði alls ekki með, að því er virðist.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira