Hagvöxtur dregst mest saman á Íslandi á milli ára 22. nóvember 2006 13:17
Búist er við að heldur dragi úr hagvexti í hinum norrænu ríkjum á næsta ári ef undan er skilinn Noregur, en mest dregur úr honum hér á landi. Reiknað er með að hagvöxtur á Norðurlöndunum verði að meðaltali um 3,4 prósent á þessu ári en þrjú prósent árið 2007. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norrænu efnahagsnefndarinnar, en greint er frá helstu niðurstöðum hennar í vefriti fjármálaráðuneytisins. Í skýrslunni kemur fram að reiknað sé með eins prósents hagvexti hér á landi á næsta ári á móti ríflega fjögurra prósenta hagvexti í ár og minnkar hagvöxtur hvergi jafnmikið á Norðurlöndum á milli ára. Verðbólga á yfirstandandi ári er langmest á Íslandi eða 7,3 prósent, sem nærri þrefalt meiri verðbólga en í Noregi, sem kemur næst á eftir Íslandi á listanum. Hins vegar er atvinnuleysi minnst á Íslandi en mest er það í Finnlandi, eða 7,7 prósent á þessu ári. Tölur í skýrslunni sýna auk þess að hagvöxtur á Norðurlöndum hafi á undanförnum árum verið tveimur prósentum hærri en á Evrusvæðinu. Sama gildir um hagvaxtarhorfur á yfirstandandi ári og því næsta.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira