Fagurfræði eða eyðileggingarfótbolti 27. júní 2006 12:56
Síðustu leikirnir í sextán liða úrslitum í dag, allir vilja Brasilíumenn áfram, og svo skiptist heimurinn í tvo hluta þegar kemur að Frökkum og Spánverjum, nú skiptir fagurfræðin ekki lengur máli, heldur árangur. Það er ofur eðlilegt að það seinna komi fyrst, það var augljóst á leik Svisslendinga og Úkraínumanna í gær, að öryggið var fyrir öllu, verjast vel og vandlega og vona að það detti mark uppúr löngu innkasti eða skyndisókn. Þetta hefur stundum verið kallaður eyðileggingarfótbolti, hugsa fyrst og fremst um að brjóta niður allt sem andstæðingurinn reynir að byggja upp, og hafa lítið fram að færa umfram það. Allt í fínu með það, að sama skapi skiptir engu hvernig hinir umdeildu Englendingar spila, þeir eru komnir áfram, þeir ná árangri og það er það sem gildir. Þetta er rétt, þótt það megi líka hugsa sem óháður áhorfandi, frjáls maður í frjálsum fótboltaheimi, að það skipti líka máli að spila vel. Ég hef aldrei verið duglegur að halda með liðum, frekar en stjórnmálaflokkum, en verið veikur fyrir flinkum einstaklingum á vellinum og liðsheildinni þegar vel tekst til. Hvort er skemmtilegra að horfa aftur á hrútleiðinlegan fótboltaleik eða fallegan og vel leikinn? Myndi einhver vilja leigja spóluna með leið Úkraínumanna í átta liða úrslitin á HM, frekar en ferðalag Argentínumanna í keppninni til þessa? Þetta er einsog munurinn á bíómynd með Claude Van Damme og Robert Deniro, sykurlausu gosi eða Rioja rauðvíni. Árangur er samt sem áður eini mælikvarðinn á HM, þeir sem vinna leikinn, vinna leikinn, en þegar kemur að því að sökkva sér ofaní HM minningar, hugsa um falleg mörk, leikmenn og lið, þá fær fagurfræðin alltaf fyrstu verðlaun
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Freyr nær orðlaus þegar skilaboð bárust frá Ancelotti: „Meinarðu þetta? Fótbolti Íslendingarnir sem fá ekki að spila fyrir Ísland Körfubolti Besta deildin bökuð í krefjandi aðstæðum í Mexíkó Fótbolti Trump setti Ólympíugullið um hálsinn: „Ég mun ekki skila því aftur“ Sport Harmleikur á handboltaleik Handbolti Blatter lætur „sólkonunginn“ Infantino heyra það: „FIFA er orðið einræðisríki“ Fótbolti Ronaldo kaupir fótboltalið Fótbolti Hanna hæstánægð í Mexíkó að sjá soninn spila Fótbolti Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á mettíma Sport Messi sér mikið eftir því að hafa ekki lært ensku Fótbolti Fleiri fréttir Völsungar drógu lið sitt úr keppni Sagður á leið í Víkina Nasistakveðja í skugga kynþáttaníðs Hanna hæstánægð í Mexíkó að sjá soninn spila Ronaldo kaupir fótboltalið Sjáðu mörkin, rauðu spjöldin og takka í höfði á ögurstundu Freyr nær orðlaus þegar skilaboð bárust frá Ancelotti: „Meinarðu þetta? Norður af heimskautsbaug beint í hjarta Evrópu Sjáðu dauðafæri Íslands og mörkin fjögur Besta deildin bökuð í krefjandi aðstæðum í Mexíkó Messi sér mikið eftir því að hafa ekki lært ensku Blatter lætur „sólkonunginn“ Infantino heyra það: „FIFA er orðið einræðisríki“ Tíu leikmenn Juventus risu næstum upp frá dauðum Eina sem var öðruvísi var graslyktin í göngunum fyrir leikinn Meistararnir rétt sluppu áfram Vinícius Júnior tryggði Real Madrid aftur sigurinn Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Atalanta fór áfram í sextán liða úrslit á síðustu spyrnu leiksins Gagnrýna ítölsk yfirvöld fyrir meðferð á stuðningsmönnum Fyrirliði Freys segir Brann fá innblástur frá Bodö/Glimt Man Utd skilaði hagnaði en skuldirnar hækkuðu samt UEFA hafnaði áfrýjun Benfica og Prestianni fær ekki að spila gegn Real Bikar undir í gulri viðvörun Mínútu þögn fyrir leik Íslands í Mexíkó Onana ætlar að koma sér aftur í markið hjá Man. Utd „Ákváðum að velja sterkasta liðið óháð aldri“ Real án Mbappé í kvöld Þjálfari Mexíkó: „Það verða allir öruggir“ Tók til varna fyrir Sterling: „Hvað er eiginlega að ykkur?“ Strákarnir okkar finna vel fyrir þunna loftinu Sjá meira