Fundin eftir átta ára prísund 25. ágúst 2006 07:00 Natascha Kampusch Stúlkan endurfundna eins og hún leit út fyrir hvarfið.
Maður á fimmtugsaldri, sem grunaður var um að hafa rænt austurrískri skólastúlku fyrir átta árum og haldið nauðugri heima hjá sér, fyrirfór sér með því að kasta sér fyrir járnbrautarlest í Vínarborg í fyrradag, skömmu eftir að stúlkan komst í hendur lögreglu. Að sögn talsmanns austurrísku lögreglunnar, Armin Halm, fannst stúlkan í garði norðaustur af Vínarborg í fyrradag. Hún sagðist vera Natascha Kampusch, en hennar hafði verið saknað síðan hún hvarf á leið til skóla í Vínarborg 2. mars 1998. Niðurstöðu úr DNA-rannsókn er að vænta í dag en ættingjar stúlkunnar hafa þegar borið kennsl á hana. Kampusch var tíu ára þegar hún hvarf og leitin að henni var sú víðtækasta í nokkru mannhvarfsmáli fyrr og síðar í Austurríki. Systir Kampusch sagði í sjónvarpsviðtali að móðir þeirra hefði fengið áfall við tíðindin. Hún hefði aldrei tapað trúnni á að dóttirin týnda væri á lífi. Margt er enn á huldu um atburðarás miðvikudagsins, en í austurrískum fjölmiðlum var greint frá því að áttræður maður hefði fundið stúlkuna í húsagarði. Hún hafi verið fáklædd, horuð og föl og í miklu uppnámi. Halm sagði að vegabréf Kampusch hefði fundist í húsi meints mannræningja hennar í bænum Strasshof, norðaustur af Vín. Sá hefði kastað sér fyrir lest, skömmu eftir að stúlkan fannst. Maðurinn var sagður heita Wolfgang Priklopil. Halm sagði stúlkuna hafa gist á öruggum stað í nærveru sálfræðiþjálfaðrar lögreglukonu. Yfirheyrslur héldu áfram yfir henni í gær. APA-fréttastofan hefur eftir Erich Zettler hjá lögreglunni að stúlkan virtist þjást af Stokkhólms-heilkenninu á háu stigi, en með því er átt við þegar gísl fer að halda með fangara sínum.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira