Benedikt náði góðum árangri 6. mars 2006 20:13 Benedikt Magnússon var í miklum ham á Arnold Classic um helgina og hafnaði í fimmta sæti í aflraunakeppninni. Mynd/Vilhelm
Heljarmennið Benedikt Magnússon náði frábærum árangri í aflraunakeppninni á Arnold Classic mótinu sem fram fór í Bandaríkjunum um helgina. Benedikt hafði lítinn tíma til undirbúnings fyrir mótið því honum barst seint boð um að vera á meðal keppenda, en hann skaut meðal annars sterkasta manni heims ref fyrir rass í keppninni. Það var hinn hrikalegi Zydrunas Savickas sem sigraði í aflraunakeppninni fjórða árið í röð, en Benedikt hafnaði í fimmta sæti, einu sæti á undan Mariuz Pudzianowski sem er núverandi handhafi titilsins sterkasti maður heims. Á mótinu kepptu flestir sterkustu aflraunamenn heimsins og er árangur Benedikts því mjög góður. Í kraftlyftingunum á mótinu bar það helst til tíðinda að Andy Bolton endurheimti heimsmet sitt í réttstöðulyftu með því að bæta met Benedikts Magnússonar frá því um daginn um hálft kíló - 440,5 kíló. Sigurvegari í þyngsta flokknum var Bandaríkjamaðurinn Jeff Lewis, sem lyfti hvorki meira né minna en 1270 kílóum í samanlögðu, þar af 550 kílóum í hnébeygju sem er heimsmet. Lewis þessi er engin smásmíði, því vegur um 240 kíló. Sérstakur þáttur um mótið í ár verður á dagskrá á sjónvarpsstöðinni Sýn fljótlega.
Erlendar Íþróttir Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Fótbolti Fleiri fréttir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun Sjá meira