Hundrað sjóliðar dóu í sprengjutilræði 16. október 2006 18:30
Um hundrað sjóliðar úr srí-lankska hernum biðu bana í bílsprengjuárás Tamíl-tígra í morgun. Óttast er að tilræðið spilli verulega fyrir friðarviðræðum ríkisstjórnarinnar og tígranna sem fram eiga að fara í lok mánaðarins. Árásin átti sér stað um 190 km norðaustur af höfuðborginni Colombo en svo virðist sem flutningabíl hlöðnum sprengiefni hafi verið ekið upp að rútum fullum af sjóliðum úr srílankska hernum á leið heim í frí. Að minnsta kosti 99 létust í sprengingunni og á annað hundrað slösuðust, þar á meðal einhverjir óbreyttir borgarar. Allt bendir til að uppreisnarmenn úr hópi tamíl-tígranna svonefndu hafi verið þarna að verki en leiðtogar samtakanna hafa hvorki viljað neita því né játa, aðeins að árásin hafi verið réttlætanleg. Átök milli tígranna og stjórnarhersins hafa farið harðnandi að undanförnu og vopnahléið sem samið var um árið 2002 virðist því farið út um þúfur. Friðarviðræður eiga að fara fram í Genf í lok mánaðarins en árásin í morgun varð tæpast til að auka mönnum bjartsýni um lyktir þeirra.
Erlent Fréttir Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira