Rice róar Japana 18. október 2006 19:00
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fullvissaði Japana í dag um að þeir nytu herverndar Bandaríkjanna ef til átaka kæmi í Austur-Asíu. Vonast er til að þetta dragi úr líkum á vígbúnaðarkapphlaupi á svæðinu. Enn er allt með kyrrum kjörum á Kóreuskaganum en grunur leikur á að Norður-Kóreumenn hyggi á aðra tilraunasprengingu á næstu dögum. Margir óttast að ef tilraunir þeirra heppnist vel muni aðrar þjóðir í heimshlutanum, til dæmis Japanar, einnig koma sér upp kjarnorkuvopnum og við það yrði ástandið eystra mun viðkvæmara. Með þetta í huga kom Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna á fund japanskra ráðamanna í Tókýó í dag til að fullvissa þá um að Bandaríkjamenn myndu standa við allar varnarskuldbindingar sínar gagnvart Japan og Suður-Kóreu. Taro Aso, utanríkisráðherra Japans, virtist ánægður með hughreystingar Rice. Frá Tókýó mun svo Rice halda til höfuðborga Suður-Kóreu og Kína til skrafs og ráðagerða við þarlenda ráðamenn um hvernig haga eigi efnahagsþvingunum gegn Norður-Kóreu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira