Calderon réttkjörinn forseti Mexíkó 5. september 2006 22:48 Felipe Calderon og eiginkona hans, Margarita Zavala, fögnuðu niðurstöðunni. MYND/AP
Sérskipaður dómstóll í Mexíkó úrskurðaðið í dag að Felipe Calderon, frambjóðandi hægrimanna, væri réttkjörinn forseti landsins. Ætla má að vinstrimenn sætti sig ekki við þessa niðurstöðu enda hefur frambjóðandi þeirra sagt kosningasvik hafa tryggt Calderon sigur. Það var í dag sem sérskipaður dómstóll, sem ætlað var að skera úr um allan vafa í tengslum við framkvæmd kosninganna, sendi frá sér bráðabirgðaniðurstöður sem sýndu að Calderon hefði sigrað í forsetakosningunum í byrjun júli en með naumindum þó. Aðeins tvö hundruð þrjátíu og fjögur þúsund atkvæði hafi á endanum skilið hann, og Andres Manuel Lopez Obrador, frambjóðanda vinstrimanna að. Það var svo síðdegis sem sjö dómarar sem skipaður voru í dómstólinn greiddu atkvæði um hvort lýsa ætti Calderon réttkjörinn forseta eða ekki. Lopez Obrador hefur frá því fyrstu tölur lágu fyrir sagt brögð í tafli og fór fram á að öll atkvæði yrðu talin að nýju. Það var þó ekki gert, aðeins endurtalið í nokkrum kjördæmum. Lopez Obrador og Calderon háðu hatramma baráttu um embættið fyrir kosningarnar og vildi hvorugur játa sig sigraðann þegar ljóst var að mjótt væri á mununum. Stuðningsmenn Lopez Obrador hafa látið í sér heyra víðsvegar um Mexíkó síðustu daga og þegar niðurstaðan lá fyrir í dag var þegar boðað til frekari mótmæla.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira