Fær ekki bætur fyrir að hafa runnið á blautu gólfi 18. desember 2006 11:12
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Bónus og Sjóvá af skaðabótakröfum manns sem rann til á gólfi Bónuss í Spönginni fyrir sex árum. Maðurinn var starfsmaður Bónuss og dag einn þegar hann kom til vinnu rann hann á blautu gólfi verslunarinnar og skall niður á annað hnéð. Maðurin fór fram á skaðabætur í kjölfarið frá fyrirtækinu sem hafnaði því en fallist var á greiðsluskyldu úr slysatryggingu launþega. Maðurinn vísaði þá málinu til Tjónanefndar vátryggingafélaganna og þar á eftir til Úrskurðarnefndar í vátryggingamálum en hvorug nefndin taldi að sýnt hefði verið fram á saknæma háttsemi fyrirtækisins. Höfðaði maðurinn því mál og byggði meðal annars á því að slysið mætti rekja til ófullnægjandi og hættulegrar vinnuaðstöðu hjá Bónusi. Á það féllst héraðsdómur ekki og segir í dómnum að það sé ekki saknæmt að þrífa gólf verslunarinnar þó að starfsmenn séu að mæta til vinnu. Stefnandi hafi vitað að gólfið hafi verið blautt og verið fullfær um að meta slysahættuna af því að ganga inn á blautt gólf. Hann beri því sjálfur ábyrgð á því tjóni sem hann hafi orðið fyrir.
Dómsmál Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira