Bongo býður sig aftur fram 23. október 2006 20:00 Omar Bongo, forseti Gabon.
Omar Bongu, sem hefur setið á forsetastól í Afríkuríkinu Gabon í nærri 4 áratugi, ætlar að bjóða sig aftur fram til embættisins árið 2012 þegar næst verður kosið. Enginn þjóðarleiðtogi í Afríku hefur lengur gengt embætti forseta. Bongo, sem er 70 ára, var endurkjörinn í nóvember í fyrra og verður hann 76 ára næst þegar Gabonar ganga að kjörborðinu og velja sér forseta. Með yfirlýsingu sinni í dag gerði forsetinn lítið um vangaveltum fjölmiðla í Gabon um að ráðherrar í ríkisstjórn þessarar fyrrverandi nýlendu Frakka ætluðu margir hverjir að berjast um embættið að sex árum liðnum. Bongo komst til valda árið 1967 um leið og olía fannst undan strönd landsins í Gíneu-flóa. Forsetinn breytti þá stjórnarskrá landsins þannig að engin takmörk voru sett fyrir því hversu oft mætti bjóða sig fram til forseta og hve mörg tímabil hver forseti mætti sitja í embætti. Bongo var endurkjörinn með 79% atkvæða í nóvember og vann því auðveldan sigur á 4 mótframbjóðendum sínum. Andstæðingr Bongos segja hann tilheyra hópi risaeðla úr röðum ráðamanna ásamt Paul Biya, forseta Kamerún, og Lansana Conte, forseta Gíneu. Biya, sem er 72 ára, tók við embætti árið 1982 og var endurkjörinn til 7 ára árið 2004. Conte er á sjötugs aldri. Hann rændi völdum í Gíneu árið 1984. Næst verður efnt til forsetakosninga þar í landi árið 2010.
Erlent Fréttir Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Erlent Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn Innlent Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Fleiri fréttir Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Sjá meira