Öryggisráð SÞ samþykkir refsiaðgerðir gegn N-Kóreu 14. október 2006 18:38
Bandaríkin, Bretland og Frakkland komust hjá ágreiningi við Rússland og Kína um refsiaðgerðir gegn Norður Kóreu og samþykktu öll 15 aðildarríki öryggisráðsins nýja ályktun. Hún felur í sér að Norður Kórea eyðileggi öll kjarnorkuvopn, gjöreyðingarvopn og langdrægar flaugar, en útilokar hernaðaraðgerðir gegn landinu. Algjört bann við vopnum almennt var tekið út úr fyrri tillögum Bandaríkjamanna, en áfram er bann við viðskiptum með efni sem hægt er að nýta til kjarnorkuframleiðslu. Þá er í tillögunum bann við viðskiptum með skriðdreka, stórskotavopn, stríðsskip og herflugvélar í eigu N Kóreu og ferðabann á embættismenn. Auk þessa eru viðskiptaþvinganir áfram í tillögunum og skilyrði um að Norður Kóreumenn snúi tafarlaust aftur til samninga við sex-landa nefndina. Wang Guangya, sendiherra Kína hjá Sameinuðu Þjóðunum sagði refsiaðgerðirnar "sterkar, öflugar og viðeigandi." John Bolton sendiherra Bandaríkjanna sagðist vera "mjög ánægður" með útkomuna. Kína og Rússland eru órólegir vegna möguleika á að Bandaríkin banni skip nálægt ströndum þeirra, en löndin eiga bæði landamæri við Norður Kóreu.
Erlent Fréttir Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira