Innlent

Þar sem suðrið andar

Við bindum alveg óskaplega miklar vonir við afmæli Jóns Sigurðssonar og margir árlegir atburðir miðast við þann dag; næturbirtan að ná hámarki, garðholan skal komin í þokkalegt horf, stjúpurnar í moldina og þá á sumarið að vera skollið á.

Í árvissu bjartsýnisæði höldum við grillveislur og sumarhátíðir í úrhelli og hitastigi rétt yfir frostmarki. Í einni slíkri komust niðurrigndir gestir einmitt að þeirri niðurstöðu að eina sanngjarna úrræðið í þessari veðurfarskreppu væri að leggja á aukaskatt vegna sólríkra sumardaga. Þá myndi hætta að hlakka viðstöðulaust í Norðlendingum og höfuðborgarbúar fengju dálitla uppbót fyrir alla sumarslydduna sem við megum þola.

Heillaráð til varnar biturleika vegna sumarleysis er að flýja land. Einmitt þegar fregnir bárust af hitabylgju í Skandinavíu vildi svo heppilega til að fjölskyldan hafði ákveðið að eyða nokkru af sumarleyfinu í vorri öldnu höfuðborg, Kaupmannahöfn. Af gamalgrónu vantrausti á veðrinu var farangurinn að hálfu sumarföt en að hálfu vetrarklæðnaður. Því þótt flestir séu hættir að taka með grænar baunir og hangikjöt í nesti af ótta við að fá ekki ætan bita í útlöndum, þá rjátlast seint af okkur siðurinn að gera ráð fyrir öllum veðrum. Enda höfum við vanist því að geta ekki brugðið okkur á milli húsa án þess að fá á okkur dálitla rigningu, sólarglennu og norðanhraglanda, allt í sömu ferðinni.

Ullarsokkarnir liggja enn ónotaðir í töskunni því fregnir af sumarhitum á Norðurlöndum öðrum en Íslandi voru síst orðum auknar. Rúnturinn milli Dýragarðs og Tívolí hefur þannig einkum falist í að þræða skugga trjánna. Fókusinn verið á að vökva blessuð börnin sem varla vita hvaðan á sig stendur veðrið svona húfulaus utandyra.

Ef bjartsýni Íslendinga í viðskiptum tengist uppruna hlýtur tortryggni gagnvart veðri að gera það líka. Þrátt fyrir hinn væna stofuhita eru því ævinlega með í för dálitlar ullarpeysur, ef það skyldi nú kula, við værum stödd víðs fjarri gististaðnum og lestarstjórar og leigubílstjórar færu samtímis í verkfall. Allur er varinn góður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×