Sendi SMS-skilaboð til móður sinnar 18. september 2006 06:15 Elizabeth Shoaf
Elizabeth Shoaf, 14 ára stúlku frá Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, var bjargað ómeiddri frá mannræningja í fyrradag eftir að henni hafði tekist að senda SMS-skilaboð úr farsíma ræningjans til móður sinnar. Ekkert hafði spurst til hennar síðan 6. september. Lögreglan handtók í gær Vinson Filyaw, 37 ára gamlan mann, sem grunaður er um að hafa haldið stúlkunni fanginni í holu. Hann verður kærður fyrir mannrán, vörslu ólöglegrar sprengju og að dulbúast sem lögreglumaður. Prísund stúlkunnar Elizabeth Shoaf var haldið fanginni í skítugri holu í rúma viku af ræningja sínum. Fréttablaðið/AP Að sögn rannsóknarlögreglu þóttist Filyaw vera lögreglumaður þegar hann hitti Shoaf og gekk með hana út í skóg. Hann hélt henni svo fanginni í tæplega fimm metra djúpri holu sem hann huldi með krossviði. Í holunni var handgrafið klósett, eldunaraðstaða og útskornar hillur. Í prísundinni hótaði Filyaw stúlkunni með heimatilbúnum handsprengjum og byssu sem skýtur neyðarblysum. Lögreglan fékk ábendingu um ferðir mannræningjans frá konu sem sagði hann hafa reynt að ræna bíl sínum fyrir utan pítsustað. Lögreglan hafði áður reynt að handtaka manninn á heimili hans, en hann flúði gegnum göng úr svefnherbergi sínu út í kofa þar sem hann faldist. Hans hafði áður verið leitað vegna gruns um að hafa áreitt 12 ára stelpu kynferðislega.
Erlent Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira