Komin mynd á utanríkisstefnu BNA 19. janúar 2005 00:01
Nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna útnefnir sex lönd sem vígi helstu harðstjórna heimsins og telur að Bandaríkin þurfi að beina sjónum sínum þangað. Yfirlýsingin þykir gefa allgóða vísbendingu um utanríkisstefnu Bandaríkjanna næstu fjögur árin. Condoleeza Rice hefur í dag og í gær setið fyrir svörum í Öldungadeild Bandaríkjaþings í tengslum við embættistöku sína sem utanríkisráðherra. Rice þótti standa sig með afbrigðum vel í erfiðri yfirheyrslu sem stóð marga klukkutíma en þar spurðu þingmenn hana meðal annars spjörunum úr um Íraksstríðið og réttlætingu ríkisstjórnarinnar á því. Rice stóð af sér alla gagnrýni og þingið samþykkti nú síðdegis skipun hennar í embætti. Rice er þar með orðin fyrsta svarta konan til að gegna embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem jafnan er talið eitt af valdamestu embættum heimsins. Bush Bandaríkjaforseti verður hins vegar svarinn í embætti, annað kjörtímabilið í röð, á morgun. Það vakti mikla athygli að í yfirheyrslunni yfir Rice í gær taldi hún sérstaka ástæðu til að telja upp fimm lönd sem hún sagði vígi helstu harðstjórna heimsins. Þessi harðstjórnarveldi væru: Kúba, Íran, Norður-Kórea, Zimbabwe, Búrma eða Myanmanr og Hvíta-Rússland. Þessi upptalnig Rice minnir óneitanlega á illræmdan lista Bush yfir öxulveldi hins illa en á þeim lista voru Írak, Íran og Norður-Kórea. Það er ekki talin vera nein tilviljun að Rice nefnir þessi sex lönd nú. Því er haldið fram að innrás í Íran sé þegar á teikniborði Bandaríkjastjórnar og fréttaskýrendur telja að með því að nefna þessi sex harðstjórnarveldi sé Rice að vara stjórnvöld þessara landa við því að þeirra gætu beðið sömu örlög og Írak.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira