Innlent

Hver félagsmaður VR fái varasjóð

Á komandi aðalfundi Verzlunarmannafélags Reykjavíkur mun stjórn félagsins leggja til að hver félagsmaður eignist séreignasjóð hjá félaginu, svokallaðan VR-varasjóð. Sjóðinn getur hver og einn nýtt til ákveðinna verkefna að eigin vali, svo sem símenntunar, ýmissa orlofsmála, forvarna og endurhæfingar eða til framfærslu t.d. við atvinnumissi, heilsubrest eða við starfslok vegna aldurs, eins og segir í tilkynningu frá VR. Gert er ráð fyrir að 350-400 milljónir króna renni árlega í VR-varsjóði félagsmanna. Til að byrja með munu þó um 1.100 milljónir króna verða lagðar inn í séreignasjóði félagsmanna sem eru um 22.000 talsins. Þetta jafngildir hagnaði af rekstri sjóða félagsins undanfarin tvö ár. Þeir munu því eignast sjóð með um 45 þúsund króna inneign að meðaltali.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×