Rannsaka seinagang stjórnvalda 17. janúar 2005 00:01
Rannsókn er hafin á því hvort stjórnvöld í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi hafi verið of sein að bregðast við hamfarafregnunum frá Indlandshafi. Forsætisráðherrar landanna þriggja hafa í það minnsta tekið við sér núna, en þeir eru allir staddir í heimsókn í Taílandi. Talið er að um þrjátíu þúsund Norðurlandabúar hafi verið á ferðamannasvæðunum í Taílandi þegar flóðbylgjan skall þar á. Ríflega tvö þúsund Svía, Norðmanna og Finna er enn saknað og eru þeir taldir af. Þrátt fyrir að forsætisráðherrar landanna þriggja séu nú í heimsókn í Taílandi linnir ekki gagnrýni á þá heima fyrir því nú eru þeir sakaðir um að hafa farið of seint á hamfarasvæðin. Mikill fjöldi fólks frá öllum norrænu löndunum vinnur baki brotnu við að bera kennsl á lík þeirra vestrænu ferðamanna sem fórust. Í þessum hópi eru til að mynda þrír Íslendingar; tveir tannlæknar og einn rannsóknarlögreglumaður. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að fólkið inni af hendi erfitt starf og leggi hart að sér. Hann hafi ekki hlakkað til heimsóknarinnar en honum hefði fundist hann verða að fara. Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, segir að á svæðunum séu foreldrar sem eigi lítil börn heima í Noregi og það sé þeirra starf að bera kennsl á látin börn á hamfarasvæðunum. Það sé mikil persónuleg fórn. Ráðherrarnir þrír hafa heitið taílenskum stjórnvöldum aðstoð við að koma upp viðvörunarkerfi og flóðvarnargörðum svo hægt sé að koma í veg fyrir að viðlíka hamfarir endurtaki sig.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Sjá meira