Lítið traust borið til Howard 5. maí 2005 00:01 "
Afrek Howards var að byggja sér upp orðstír stjórnmálamanns sem kjósendum gæti líkað enn verr við en Tony Blair." Þetta var dómur leiðaragreinar í The Times í gær yfir frammistöðu Michaels Howard, leiðtoga Íhaldsflokksins, í kosningabaráttunni. Um fjörutíu milljónir brezkra kjósenda voru í gær kallaðir að kjörborðinu í 645 kjördæmum til að kjósa nýtt þing eftir átta ára stjórnarsetu Verkamannaflokksins undir forystu Tony Blair. Þrátt fyrir megna óánægju margra kjósenda úr öllum flokkum með það hvernig Blair leiddi Breta til þátttöku í Íraksstríðinu - stuðningsfólki Verkamannaflokksins var boðið upp á nefklemmur til að mæta með á kjörstað - bentu allar skoðanakannanir til að hann myndi halda öruggum þingmeirihluta þriðja kjörtímabilið í röð. Þær bentu jafnframt til að þetta yrðu fyrstu kosningarnar frá því árið 1974 sem flokkur fengi öruggan meirihluta þingsæta út á innan við fjörutíu af hundraði greiddra atkvæða. "Eins og í síðustu tvennum kosningum mun kosningakerfið tvímælalaust hjálpa Verkamannaflokknum en gera Íhaldsflokknum og þó sérstaklega Frjálslyndum demókrötum erfitt fyrir," segir Daily Telegraph. Þrátt fyrir að reiknað væri með því að Íhaldsflokkurinn tapaði stórt hefur Michael Howard sagzt munu halda áfram, óháð úrslitunum, enda vilja íhaldsmenn forðast að lenda strax í kjölfar kosninganna í hörðum leiðtogaslag, þeim fjórða á átta árum.
Erlent Fréttir Mest lesið Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Innlent Grunaður um að hafa frelsissvipt ferðamann í nokkrar klukkustundir Innlent Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Erlent Hikar ekki við að lögsækja skyldi Rafmennt nota nafn skólans Innlent Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Innlent Drengnum sleppt en fleiri handteknir Erlent Munaði sex atkvæðum Erlent Birgir Guðjónsson er látinn Innlent Kalla eftir mannúð og miskunnsemi stjórnvalda gagnvart börnum Innlent Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Innlent Fleiri fréttir Brand fær að ganga laus á meðan réttað er yfir honum Flokka Valkost fyrir Þýskaland sem öfgasamtök Segjast hafa lent í drónaárás á alþjóðlegu hafsvæði Drengnum sleppt en fleiri handteknir Munaði sex atkvæðum Waltz bolað úr embætti af Trump vegna Signal skilaboðanna Var svo „þreyttur á öllu“ að hann ákvað að aka inn í þvögu barna Börnum haldið innilokuðum í „hryllingshúsi“ í fleiri ár Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Getur frelsað El Salvador-fangann en vill það ekki Skrifa nú undir samninginn sem féll af borðinu eftir hitafundinn Sænskur blaðamaður dæmdur fyrir að móðga Erdogan Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Segja 4.700 Kimdáta hafa fallið eða særst Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma Ungi morðinginn flúði nýverið af vistheimili Segir sveppaeitrunina hafa verið „hörmulegt óhapp“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Ungur maður handtekinn vegna morðanna í Uppsölum Fagnaði fyrstu hundrað dögunum í Hvíta húsinu Pakistan segir Indland mögulega gera árás á næstu klukkustundum Árásarmannsins enn leitað Þrír látnir eftir skotárás í Uppsölum Fella niður hluta ákæru á hendur meintum sveppamorðingja Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Bannað að selja auðmönnum evrópskan ríkisborgararétt Orsakir rafmagnsleysisins sögulega enn óþekktar Fjórir létust þegar bíl var ekið í gegnum frístundaheimili Allt að komast í samt lag á Spáni og í Portúgal Carney og Frjálslyndir fóru með sigur af hólmi Sjá meira