Innlent

Mikill áhugi á Norðlingaholti

Reykjavíkurborg opnaði í gær tilboð vegna þriðja áfanga úthlutunar lóða í Norðlingaholti. Alls buðu 123 í fjórtán lóðir í Norðlingaholti og skiluðu þeir samtals 885 tilboðum í byggingarrétt á lóðunum, en um er að ræða tvær fjölbýlishúsalóðir, fimm lóðir fyrir samtengd tvíbýlishús, eina keðjuhúsalóð og sex einbýlishúsalóðir. Fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar að tilboð í lóðirnar hafi verið töluvert hærri en í síðasta útboði í júní í fyrra. Hæsta tilboð í einbýlishúsalóð nam til að mynda sautján komma tveimur milljónum króna og hæsta tilboð í fjölbýlishúsalóð með 27 til 30 íbúðum var rúmlega 183 milljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×