Innlent

Telur sparnaðarleið óeðlilega

Landhelgisgæslan kemur sér hjá því að borga virðisaukaskatt og flutningsjöfnunargjald af olíu á varðskipin með því að kaupa hana í Færeyjum. Varaformaður fjárlaganefnar telur óeðlilegt að ríkisstofnun reyni að spara með þessum hætti. Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir ekki eðlilegt að Landhelgisgæslan sem ríkisstofnun reyni að komast hjá sköttum og skyldum með slíkum hætti þótt útgerðir hér á landi stundi það að kaupa olíu í Færeyjum. Það geti talist óeðlilegt ef ríkisstofnun reyni að forðast opinberar álögur með slíku. Hann geti hins vegar ekki séð að Landhelgisgæslan brjóti lög með þessu og telji þetta ekki stórmál en ef Landhelgisgæslan telji sjálf að verðið á Íslandi sé óeðlilegt miðað við verð á frjálsum markaði í Færeyjum þá sé það ekkert nema eðlileg sjálfsbjargarviðleitni að kaupa þar olíu ef skipin eiga þar leið um. Einar var inntur eftir því hvort ekki væri hæpið að skipin hefðu í öllum tilvikum átt leið hjá Færeyjum þar sem öll olía hefði verið keypt þar í fyrra og svaraði hann því játandi. Aðspurður hvort ekki væri ástæða til þess að skoða hvernig málum væri háttað og jafnvel breyta starfsháttum sagði Einar að slík mál væru alltaf í skoðun en Landhelgisgæslan hefði löngum talið að henni væri þröngt sniðinn stakkur og það kunni að vera rétt. Hann telji að það sé skilningur og vilji til þess að stofnunin verði rekin með reisn eins og löngum hafi verið. Hann eigi von á að það sé skilningur hjá ríkisvaldinu um það þannig ekki þurfi að leita að fjármagni með neinum kúnstum til þess að halda henni gangandi. Landhelgisgæslan kaupir eldsneyti fyrir um 70 milljónir króna á ári fyrir varðskipin þrjú og flugvélar í hennar eigu. Varðskipin sinna iðulega gæslu á hafsvæðinu á milli Íslands og Færeyja og þar kýs gæslan að kaupa olíu. Í fréttum Stöðvar 2 á sunnudag kom fram að olía er flutt milli skipa Landhelgisgæslunnar og í Fréttablaðinu í dag er haft eftir Georg Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, að olía hafi stundum verið flutt á milli skipa ef ekki hafi verið til fyrir olíu hjá stofnuninni. Einar segir að tollstjóri telji að það eigi að skattleggja, alla vega með jöfnunarsjóðsgjaldi



Fleiri fréttir

Sjá meira


×