Innlent

Getum verið lukkuleg

Ríkið hefur gert kjarasamning við 24 af 25 aðildarfélögum BHM og stendur aðeins Félag íslenskra náttúrufræðinga fyrir utan samninginn. Við undirritun og samþykki samningsins fá félagsmenn aðildarfélaganna sömu prósentuhækkun og ASÍ, eða 3,25 prósent. "Ég held að við getum verið nokkuð lukkuleg með þetta," segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM um samninginn. Ofan á þá hækkun leggst mismikil hækkun eftir félögum og er hækkunin langmest hjá þeim félögum sem hafa lægsta taxtann. Þroskaþjálfar eru til dæmis tekjulægsta félagið innan BHM og fá þeir um 11-12 prósenta hækkun í fyrsta áfanga. Önnur félög fá minna. Um næstu áramót kemur síðan viðbótarhækkun á öll félögin upp á 2,5 prósent. 1. maí 2006 tekur ný launatafla gildi og eiga þá nýir stofnanasamfningar að vera tilbúnir. Gert er ráð fyrir að lágmarkslaunin verði þá tæp 200 þúsund og nær 210 þúsundum þegar samningstímanum lýkur. "Það fylgir ákveðið fé þessari aðgerð sem er líka hugsað til þess að jafna milli stétta og hópa. Við ætlum að reyna að tryggja það að ekkert félag fái minna út úr þessum samningi en 15 prósent en það þýðir ekki endilega að allir félagsmenn félaganna fái það. Við getum frekar lofað öllum einstaklingum 13 prósentum því þessi samningur kemur misjafnlega út fyrir félagsmenn," segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM. Hún segir að sátt ríki innan BHM með samninginn. "Auðvitað vill maður alltaf fá meira. Ríkið metur það em svo að kostnaðaraukinn sé upp á 19,83 prósent og ég held að við getum vel við unað þó að þetta komi misjafnlega niður eftir félögumm" segir Halldóra nokkuð sátt. Samningurinn var kynntur á Grand hótel í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×