Innlent

Segir samning varnarsigur

Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara gerði nýjan kjarasamning við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið á tíunda tímanum í gærkvöldi, en eldri kjarasamningur félagsins rann út á miðnætti. Formaður Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara segir samninginn varnarsigur. Nýr samningur gildir til mars árið 2008, en hann er á svipuðum nótum og samningur sem ríkið hefur gert við sérfræðilækna. Kristján H. Ragnarsson, formaður Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, segir nýja samninginn tryggja viðunandi rekstrar- og starfsskilyrði fyrir stéttina. Hann segir samninginn varnarsigur fyrir sjúkraþjálfara því kröfur um ákveðið kostnaðarþak hafi verið settar í nefnd til frekari afgreiðslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×