Strætisvagn skemmdist í eldsvoða 17. febrúar 2005 00:01
Strætisvagn stórskemmdist í eldsvoða í morgun. Afturhluti vagnsins stóð í björtu báli eftir að eldur kom upp í vélarrúminu. Engir farþegar voru um borð en vagnstjórar fá sérþjálfun í hvernig eigi að bregðast við svona óhöppum. Vagninn var á leið inn á Kirkjusand eftir aukaferð og vagnstjórinn var nýbúinn að hleypa farþegum sínum út á Lækjartorgi. Vagninn var á Sæbraut, á móts við gamla Útvarpshúsið, þegar aðvörunarljós um eld kviknaði í mælaborðinu. Vagnstjórinn drap samstundis á vélinni, opnaði allar dyr og fór með slökkvitæki aftur að vélarrúminu. Í þann mund sem hann kom þar að blossaði upp mikill eldur og dugði slökkvitæki hans hvergi nærri til að slökkva, né slökkvitæki rútubílstjóra sem kom honum til aðstoðar. Slökkviliðinu tókst hins vegar að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma þegar það kom á vettvang. Vagninn er mikið skemmdur. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætós, segir að jafnvel þótt farþegar hefðu verið í vagninum hefðu þeir ekki verið í neinni hættu því í öllum vögnunum sé alltaf hægt að „neyðaropna“ ef eitthvað kemur upp á og flóttaleiðir því greiðar. Hann segir svona atburði þó að sjálfsögðu litna alvarlegum augum og nákvæm rannsókn muni fara fram á vagninum til að finna hvað fór úrskeiðis. Ásgeir telur þó ekki ástæðu til að taka aðra vagna af þessari gerð úr umferð.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira