6% stjórnarmanna konur 8. febrúar 2005 00:01
Konur skipa aðeins sjötta hvert sæti í stjórnum íslenskra lífeyrissjóða. Hlutfallið er enn lægra þegar kemur að stjórnum fyrirtækja í Kauphöll Íslands, en innan við sex prósent stjórnarmanna eru konur. „Þar sem peningar eru, þar eru konur ekki.“ Þannig hljóðar fyrirsögn greinar í Lögmannablaðinu um jafnréttismál en ný könnun staðfestir að þetta á við um stjórnir þeirra fyrirtækja og sjóða sem höndla með mesta fjármuni í íslensku þjóðlífi. Nú þegar tími aðalfundanna fer í hönd kjósa formenn fjögurra fagfélaga kvenna að vekja athygli á þessari stöðu mála, en þetta eru formenn félaga kvenna í læknastétt, endurskoðun, lögmennsku og verkfræði. Hlutfall kvenna í stjórnum 32 fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöll Íslands er nú tæp sex prósent. Það þýðir að í sjö manna stjórn fyrirtækis er hlutfall kvenna innan við hálf kona að meðaltali á móti sex körlum, og reyndar hálfum betur. Sérstök athygli er vakin á stjórnum lífeyrissjóða. Hlutfall kvenna þar jafngildi því að þar sé ein kona að jafnaði í hópi sex stjórnarmanna. Bent er meðal annars á að í átta manna stjórn lífeyrisjóðs verslunarmanna séu aðeins tvær konur þótt konur séu 60 prósent sjóðsfélaga. Engin kona sé í stjórn lífeyrissjóðs bankamanna þótt 70 prósent sjóðsfélaga séu konur. Aðeins í Lífeyrisjóði starfsmanna sveitarfélaga séu konurnar fleiri í stjórn en karlar. Sif Konráðsdóttir, formaður Félags kvenna í lögmennsku, segir þetta ekki hægt og að það gerist eitthvað ef þetta fari ekki að lagast. Og það getur orðið breyting þarna á á næstu mánuðum ef þeir sem skipa í stjórnirnar átta sig á að það sé núna sem þetta þurfi að breytast að sögn Sifjar.. Formaðurinn segist ekki mæla með kynjakvóta heldur hvetji félagið konur til þátttöku og karla til að styðja konur til þátttöku.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira