Getur ekki mælt með vatninu 7. febrúar 2005 00:01
Lýðheilsustöð getur ekki mælt með því að sett sé á markað fólasínbætt íslenskt sódavatn, þrátt fyrir að stöðin mæli með því á sama tíma að landsmenn auki neyslu á því vítamíni. Meðal röksemda er að vítamínbætt, erlent morgunkorn er talið metta þörf „barna“ á þessu tiltekna B-vítamíni. Dreifing á drykknum Kristal plús, sem er vítamínbætt kolsýrt vatn, var nýverið stöðvuð. Umhverfisstofnun fékk Lýðheilsustöð til að meta hvort drykkurinn ætti að fara á markað en því mælir stöðin ekki með á þeim forsendum að í honum er B-vítamínið fólasín. Framleiðandinn, Ölgerð Egils Skallagrímssonar, segist þó hafa þróað drykkinn sérstaklega með íslenskar aðstæður í huga og byggt á rannsókn Lýðheilsustöðvar sem sýnir að neysla fólasíns er undir ráðleggingum. Samkvæmt Lýðheilsustöð getur skortur á fólasíni leitt til alvarlegra fósturskaða. Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri hjá Lýðheilsustöð, segir það rétt að þetta hljómi kannski svolítið mótsagnakennt en taka verði tillit til þess hvort hætta sé á ofneyslu hjá ákveðnum hópum, sem í þessu tilfelli sé hjá börnum. Ofneysla fólasíns getur dulið einkenna B12-vítamínsskorts. Erlent vítamínbætt morgunkorn inniheldur þó fólasín og reiknað er með að þaðan sæki íslensk börn vítamínið. Það vekur upp þá spurningu af hverju engin athugasemd er gerð við sölu við þess varnings. Hólmfríður segir þá vöru vera á markaði og hefð sé fyrir henni. Því verði að taka tillit til hennar þegar metin sé hættan á ofneyslu. Hólmfríður vildi ekki fara út í þá umræðu hvort ekki væri verið að mismuna framleiðendum og vísaði á umhverfisstofnun. Helsti markhópur Ölgerðarinnar eru konur á barneignaaldri en þrátt fyrir að fólasínneyslu þeirra megi auka þá segir Hólmfríður ljóst að vítamínbætt sódavatn sé ekki leiðin til þess. Auk þess kveðst hún ekki sjá hvernig hægt sé að markaðssetja hollustuvöru sem ekki sé við hæfi barna.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira