Hafa áhyggjur af frumvarpi 7. febrúar 2005 00:01 EOL
Verkalýðsforystan hefur þungar áhyggjur af væntanlegu frumvarpi félagsmálaráðherra um breytingar á fyrirkomulagi útgáfu atvinnuleyfa fyrir útlendinga. Árni Magnússon félagsmálaráðherra kynnti forystumönnum ASÍ fyrir skemmstu að frumvarp sem fæli í sér breytingar á þessu fyrirkomulagi væri í bígerð og að til greina komi að dómsmálaráðuneytið muni hafa þessi mál á sinni könnu. "Ef málefni vinnumarkaðarins verða sett undir dómsmálaráðuneytið óttumst við að það dragi úr aðkomu fulltrúa vinnumarkaðarins og atvinnurekenda og önnur sjónarmið en vinnumarkaðsál munu ráða för." Í síðustu viku ræddi fjármálaráðherra um skýrslu þar sem fram kemur að áætlaðar tapaðar tekjur hins opinbera vegna svartrar atvinnustarfsemi nemi 18 til 24 milljörðum króna. Guðmundur Gunnarsson segir það mótsagnakennt að á sama tíma og fjármálaráðherra vilji skera herör gegn skattsvikum, ætli félagsmálaráðherra að leggja fram frumvarp sem muni hugsanlega draga úr eftirliti með erlendu launafólki. "Slíkt frumvarp myndi beinlínis miðast við að stækka neðanjarðarhagkerfið," segir Guðmundur. Guðmundur bendir á að það sé ekki óalgengt í byggingargeiranum á Íslandi að menn flyti inn erlent vinnuafl sem vinnur svart fyrir laun sem eru lægri en lágmarkslaun og njóti þar að auki engra réttinda á borð við veikindafrís eða orlofs. Hann segir það sé nóg pláss á íslenskum vinnumarkaði fyrir erlent vinnuafl en það verði að fara eftir settum reglum í þessum málum og ef stjórnvöld vilja sporna við vandanum verði að vera virkt eftirlit með þessum málum. "Menn verða að spyrja sig hvernig fyrirtæki með einn skráðan starfsmann geta reist heilu íbúðablokkirnar." Ekki náðist í Árna Magnússon félagsmálaráðherra eða Siv Friðleifsdóttur, formann félagsmálanefndar, vegna málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira