Innlent

Gerir athugasemdir við álit

Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hefur borist álit Lýðheilsustöðvar vegna umsóknar sem Ölgerðin sendi Umhverfisstofnun og varðar vítamínbætingu á drykknum Kristal Plús, en Umhverfisstofnun stöðvaði dreifingu hans í síðasta mánuði. Ölgerðin gerir alvarlegar athugasemdir við álitið og segi það einkennast af mótsögnum og ómálefnalegum útreikningum. Í drykknum Kristal Plús eru sex tegundir B-vítamíns og er ekki gerð athugasemd við notkun 5 þeirra í áliti Lýðheilsustöðvar en notkun fólasíns er hins vegar dregin í efa. Ölgerðin bendir hins vegar á að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum um mataraæði landsmanna skorti fólk fólasín. Auk þess bendir fyrirtækið á að skortur á fólasíni geti leitt til alvarlegs fósturskaða, m.a. samkvæmt bæklingi Lýðheilsustöðvar, en að helsti markhópurinn fyrir Kristal Plús séu konur á barneignaraldri. Þá telur Ölgerðin ljóst að neysla fólasíns sé ekki skaðleg enda sé um að ræða vatnsleysanlegt vítamín og að umframmagn þess skili sér úr líkamanum með þvagi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×