Vonast eftir meira öryggi 31. janúar 2005 00:01
Lítil stúlka frá Keflavík lést fyrir tíu dögum eftir erfiðleika við fæðingu. Flytja þurfti móður hennar með sjúkrabíl til borgarinnar vegna þess að skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru ekki opnar allan sólarhringinn. Foreldrarnir syrgja dóttur sína sárt en segjast vonast til þess að reynsla þeirra verði til einhvers; að öryggi verði bætt fyrir íbúa á Suðurnesjum. Karen Hilmarsdóttir og Einar Hafsteinn Árnason misstu dóttur sína fyrir tíu dögum. Litla stúlkan, sem var nefnd Birgitta Hrönn, átti að koma í heiminn 14. febrúar og gekk meðgangan vel. Þau höfðu reynt lengi að eignast barn og varð Karen þunguð eftir glasameðferð. Aðfaranótt föstudagsins 21. janúar missti Karen legvatnið heima hjá sér og fékk ráðleggingu um að fara á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Þar kom í ljós að höfuð barnsins klemmdi naflastrenginn og þar með lífæð þess. Engin aðstaða var til að bregðast við á staðnum og var Karen því send með sjúkrabíl til Reykjavíkur. Stúlkan þeirra lifði ferðalagið ekki af. Karen og Einar tóku þá ákvörðun að láta ekki reiði stjórna sér og álasa ekki neinum. Einar segir að ljósmóðirin sem hafi sinnt þeim hafi staðið sig eins og hetja og gert allt sem í hennar valdi stóð en ef útkallsvakt hefði verið á skurðstofunni þá sé mögulegt að þetta hefði farið öðruvísi og dóttir þeirra væri kannski á lífi. Sú þjónusta sé ekki fyrir hendi og þau Karen voni að úr því verði bætt eftir þessa reynslu. Karen segist hafa verið full tilhlökkunar á leið sinni á fæðingardeildina en einnig hafi hún fundið fyrir kvíða og spennu þegar vatnið hafi farið. Þegar þau hafi komið á sjúkrahúsið hafi þau verið brosandi út að eyrum því litla stúlkan hafi ætla sér að koma aðeins fyrr í heiminn en áætlað var. Karen segir að um leið og hún hafi verið sett í mónitor og skoðuð hafi komið í ljós að hjartsláttur Birgittu hafi ekki verið eins og hann átti að vera og því hafi kvíða sett að henni. Hún hafi samt hugsað sem svo að þetta væri hægt að laga en um leið og ljósmóðirin hafi tekið upp símann og hringt sjúkrabíl hafi hún fyllst hræðslu enda hafi hún ekki vitað hvað væri að gerast. Hún hafi alls ekki átt von á þessu þar sem meðgangan hefði gengið vel. Karen segir að þegar hún hafi beðið eftir sjúkrabílnum hafi henni þótt tíminn lengi að líða en ljósmóðirin hafi reynt að gera allt sem hún hafi getað. Þá hafi aksturinn eftir Reykjanesbrautinni tekið langan tíma í hennar huga og hún hafi fundið það að það væri meira en lítið að. Karen segir að brunað hafi verið með hana beint inn á skurðstofu, þangað hafi hún farið með þær hugsanir að eitthvað mikið væri að. Það hafi reynst rétt og þegar hún hafi vaknað eftir svæfingu hafi hún vitað hvað hefði gerst, að þau hefðu misst dóttur sína. Ekki er hægt að fullyrða að Birgitta hefði lifað þótt öll aðstaða hefði verið fyrir hendi. Um 40 milljónir kostar að halda uppi sólarhringsvöktum á skurðstofum í Reykjanesbæ en Heilbrigðisstofnunin hefur síðustu ár verið í þriðja sæti yfir fjölda fæðinga á landinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira