Innlent

Dettifoss kominn til Eskifjarðar

Varðskipin Týr og Ægir komu með flutningaskipið Dettifoss í togi til Eskifjarðar um miðnætti eftir svaðilför út af Austfjörðum, sem hófst með því að stýrið datt af Dettifossi á föstudagskvöldið og skipið varð stjórnlaust. Vel gekk að leggja þessu stærsta flutningaskipi íslenska flotans að bryggju enda var veður orðið gott. Kafarar munu kanna skemmdir á skipinu í dag og jafnframt verður ákveðið hvort það verður affermt á Eskifirði eða dregið til viðgerðar erlendis með farminn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×