Bað til guðs - fékk skyldusparnað 17. febrúar 2005 00:01
Viðbrögð við tilkynningum Íbúðalánasjóðs um ósóttan skyldusparnað, sem liggur hjá sjóðnum hafa verið mikil og oftast gleði blandin hjá eigendum peninganna. Í sumum tilvikum hafa þeir komið í góðar þarfir, eins og hjá manninum sem átti bilaðan bíl. Í bréfi sem hann sendi Brynhildi Erlu Pálsdóttur hjá Íbúðalánasjóði eftir að hafa fengið tilkynningu frá henni um hann ætti inni sparnað, sagði: "Bíllinn minn bilaði og ég bað til guðs. Þá datt inn bréf frá þér." Tæpar 12 milljónir króna í skyldusparnaði liggja nú inni hjá Íbúðalánasjóði og bíða þess að um þúsund eigendur þeirra vitji þeirra. Langflestir þeirra eru búsettir erlendis. Brynhildur Erla hefur haft veg og vanda af því að hafa upp á eigendum fjármunanna og tilkynna þeim um inneignina. Þessu hefur hún sinnt auk starfa sinna hjá sjóðnum. Brynhildur kvaðst við hafa ýmsar aðferðir til að leita fólkið uppi. Fyrst færi hún í erlendar símaskrár, sem gögnuðust vel, einkum á Norðurlöndunum. Þá notaði hún sendiráðin með því að senda lista til þeirra og biðja þau aðstoðar. Loks notaði hún Íslendingabók og fyndi ættingja eða foreldra, sem síðan kæmu skilaboðum til réttra aðila. Varðandi þá sem væru utan af landi nægði oft að hringja í bæjarskrifstofurnar á viðkomandi stað, þar sem maður þekkti mann, og rekja sig þannig áfram. "Þetta er seinlegt en hefur borið ótrúlegan árangur," sagði Brynhildur, sem er búin að koma kúfnum af skyldusparnaðinum í réttar hendur, því fyrir fjórum árum var hann samtals 37 milljónir króna. "Fólk er yfirleitt afar þakklátt og ég hef fengið þvílíka gullmola í þakkarbréfum, að það er alveg stórkostlegt." Brynhildur Erla nefndi í þeim efnum Svía sem unnið hafði hér á árum áður, en ekki komið hingað í 18 - 20 ár. Hann var ákveðinn í að hann ætlaði að eyða þessum skyldusparnaði, sem hann ætti ónotaðan, á Íslandi. Hann brá því undir sig betri fætinum í sumar og mætti á þjóðhátíð í Eyjum. Upphaflega voru stærstu upphæðirnar um og yfir milljón, að sögn Brynhildar Erlu. Hún sagði að nú væri hæsta inniliggjandi fjárhæðin á einstakling um 15 þúsund krónur, en fleiri hundruð manns væru undir 100 krónunum. Minnsta innistæðan væri 19 aurar og líklega yrði nú ekki lagt í mikla rannsóknarvinnu við að koma henni út.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Fleiri fréttir Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Sjá meira