Ísaksskóli hækkar laun og gjöld 17. febrúar 2005 00:01
Tíu kennarar af sextán í Ísaksskóla hafa gert sérsamning um kjör. Kennararnir fá 240 til 250 þúsund krónur í lágmarkslaun. Einstaklingssamningar geta hækkað kjör hvers þeirra. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir samninginn í mörgum tilfellum fela í sér lakari kjör en nýgerður kjarasamningur grunnskólakennara kveði á um. Hann geti því ekki talist kjarasamningur og brjóti í bága við lög. "Ef ég sjálfur færi að kenna í grunnskóla yrðu laun mín ekki lægri en rúmlega 250 þúsund. Margir kennarar á mínum aldri eru á hærri launum en ég væri vegna viðbótarmenntunar og ýmissa þátta. Þarna er því settur upp taxti sem í mjög mörgum tilfellum er undir lágmarkstaxta stéttarfélags og það er ólöglegt," segir Eiríkur. Edda Huld Sigurðardóttir, skólastjóri Ísaksskóla, segist ekki vilja tjá sig um yfirlýsingu Kennarasambandsins um ólögmæti samningsins: "Samninganefndin hafði á öllum stigum málsins fullt samráð við Kennarasambandið." Eiríkur segir hins vegar ekkert samráð hafa verið fyrir hendi. Edda Huld bendir á að 240 til 250 þúsund séu lágmarkstölur. Hver og einn kennari geri einstaklingssamning við skólayfirvöld sem veiti honum hærri laun á grundvelli hæfni: "Það gefur auga leið að geti kennari fengið 260 til 270 þúsund í næsta skóla þá semur hann ekkert við mig um 240 þúsund. Vilji ég halda þeim kennara býð ég honum betri kjör en hann getur fengið í næsta skóla." Ísaksskóli hefur staðið höllum fæti fjárhagslega og stóð meðal annars ekki skil á vörslusköttum í haust eins og fram hefur komið. Edda Huld segir búið að endurfjármagna reksturinn. Foreldrum hafi einnig verið tilkynnt á fundi á miðvikudag að skólagjöld fimm ára barna hækki úr 10.500 í 13.500 á mánuði og skólagjöld skólaskyldra barna úr 13.500 í 16.000 krónur. Ekki liggur fyrir hve mikill launakostnaður skólans verður þar sem enn á eftir að semja um umframhækkun við hvern kennara.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira