Leigði í ósamþykktu húsnæði 17. febrúar 2005 00:01
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar leigði herbergi fyrir skjólstæðinga sína í nokkra mánuði í haust í ósamþykktu húsnæði að Hvaleyrarbraut 22, á hafnarsvæðinu í suðurhluta bæjarins. Björn Baldursson, annar tveggja eigenda húsnæðisins, segir að eigendurnir hafi losað sig við skjólstæðinga stofnunarinnar því að þeim hafi bara fylgt eiturlyfjaneysla og vandræði. Hópur útlendinga býr nú í húsnæðinu sem er í skrifstofum gamallar síldarvinnslu við Hvaleyrarbraut 22. Hópurinn samanstendur af sex Lettum, þremur Litháum og þremur Íslendingum. Íslendingarnir eru öryrkjar og útlendingarnir vinna hjá öðrum eigandanum og verktakafyrirtækinu Ris. Í húsnæðinu hefur verið innréttuð herbergjaleiga með öllum græjum, níu herbergi og þrjár stúdíóíbúðir án þess að tilskilin leyfi lægju fyrir. Herbergin eru leigð á 32 þúsund og íbúðirnar á 40 þúsund krónur. Húsnæðið er í eigu Péturs Jónssonar húsasmíðameistara og Björns. "Þetta er allt nýuppgert með eldhúsi, setustofu, sjónvarpi, þvottahúsi, þurrkara og þvottavél, uppþvottavél í eldhúsinu. Öll herbergi eru parkettlögð og steinteppi á sameigninni. Það er allt nýuppgert og öll herbergin nýmáluð með nýjum innréttingum. Þetta er skráð iðnaðarhúsnæði en mjög huggulegt, bara svipað og gistiheimilið Berg, iðnaðarhúsnæði sem búið er að breyta í gistiheimili," segir Björn. Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri kannaðist við að búið væri í þessu húsnæði en sagði málið ekki í lögsögu hafnarinnar heldur byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits. Starfsmanni byggingarfulltrúans í Hafnarfirði kom á óvart að búið væri í þessu húsnæði enda um iðnaðarhúsnæði á hafnarsvæði að ræða. Hvorki náðist í félagsmálastjóra Hafnarfjarðar né fulltrúa heilbrigðiseftirlitsins í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira